Rekstrarþjónusta

Rekstrarþjónusta Rafbox

Rafbox býður húsfélögum og fyrirtækjum upp á rekstrarþjónustu, allt til að auðvelda rekstraraðilum félags/fyrirtækis lífið.

Innifalið í þjónustunni er:

  • Innheimta á raforkugjaldi* sem hver notandi hleður fyrir - sent í gegnum viðskiptabanka félags/fyrirtækis.
  • Notkunaryfirlit flokkað og sent félagi/fyrirtæki mánaðarlega (eða eftir samkomulagi)
  • Reglubundið eftirlit og uppfærsla á hleðslukerfinu.
  • Forgangur á útköll sem koma til vegna uppsetninga á nýjum stöðvum í kerfið og viðhalds ef þörf krefur
  • Aðstoð við uppsetningu aðgangs að skýjalausn og farsíma app Charge Amps
  • Kennsla á skýjalausn og farsíma app Charge Amps
  • Betri kjör á hleðsluköplum og töskum

Fyrir rekstrarþjónustu greiðir húsfélag kr. 900 m/vsk á mánuði fyrir hvert tengi í kerfinu.

Í stað mánaðargjalds býðst húsfélagi að greiða árgjald á hvern notanda kr. 9.720 m/vsk sem gerir 10% afslátta af mánaðargjaldi.

Gjöld rekstrarþjónustu fyrirtækja fer eftir umfangi og stærð hleðslukerfis.

Hafðu samband á [email protected] eða í síma 620-9200 til að kynna þér málið betur!

*Ekkert aukagjald er greitt til Rafbox fyrir raforkukaup. Húsfélagi/fyrirtæki er frjálst að versla við hvaða raforkusala sem það telur ákjósanlegastan. Einungis er send rukkun fyrir fyrirframákveðnu gjaldi á hverja kWst sem húsfélag/fyrirtæki ákveður að notendur greiði. Ef gjaldið er ákveðið hærra en raungjald frá raforkusala og dreifingaraðila, leggst mismunur á þeim gjöldum inn á sjóð húsfélags/fyrirtækis - sem t.d. getur verið notaður til að borga þjónustugjöld og/eða upp í framkvæmdina til lengri tíma.

Getum við orðið að liði?
Sendu okkur tölvupóstfangið þitt og við höfum samband.